Heimska + Esja = Þreyta!
Near death expirence...kannski ekki alveg...nema hvað...
Ég sendi Kristu sms í gær og spurði hana hvort hún væri ekki til í að koma á línuskauta í góða veðrinu. Þá hringir hún í mig og spyr mig hvort ég sé ekki frekar til í að rölta Esjuna. Jú ég var sko til í það þar sem ég hef ætlað að labba hana í allt sumar.
Við ákváðum við nú að gera þetta doldið kósý, tókum með okkur einnota grill, kjöt, hamborgara og nokkra bjóra. Krista var jafnvel að pæla í útilegustólunum og svo bara sund eftir á...
En viti menn... Þessi ákvörðun að rölta frekar esjuna heldur en að fara á línuskauta var bara ein sú heimskasta sem ég hef tekið! Við fórum ótrúlega heimska "stutta" leið, vorum loksins komin upp á topp um miðnætti og grilluðum þá, öll orðin glorhungruð! Svo var náttla bara komið myrkur og við vorum öll í strigaskóm (já ég veit, heimskulegt) þannig að við enduðum í einhverri helvítis mýri og á einhverjum fáranlegum göngustíg ef það má kalla hann það! Við vorum semsagt í sjö klukkutíma að þessu helvíti!
Svo þurfti ég að mæta kl. 9 í vinnuna í morgun og ég hef barasta held ég aldrei á ævinni verið jafn þreytt og ég er núna. Við erum heppin að vera á lífi, fín reynsla en næst held ég að ég skelli mér frekar bara á línuskauta!
